250 börn og 33 starfsfólk í sóttkví vegna 12 smita í grunnskólum bæjarins

250 börn og 33 starfsfólk í sóttkví vegna 12 smita í grunnskólum bæjarins

Covid-19 smit hafa verið að greinast í grunnskólum Akureyrarbæjar í vikunni og í gærkvöldi staðfesti Akureyrarbær á vef sínum að 12 börn úr grunnskólum bæjarins hafi greinst með Covid-19 smit nýlega. Vegna þessara 12 smita hafa 250 börn og 33 starfsfólk verið sett í sóttkví.

Skólastarf var þó með eðlilegum hætti í morgun, föstudaginn 1. október. Gripið hefur verið til viðeigandi ráðstafana í öllum grunnskólum bæjarins og sameiginlegum viðburðum sem ekki eru hluti af daglegu skólastarfi hefur verið frestað.

„Rakning vegna þeirra smita sem upp hafa komið stendur yfir. Hér eftir sem hingað til verður fyrirmælum rakningarteymis fylgt í hvívetna en engin fyrirmæli um takmarkanir á skólastarfi hafa enn sem komið er borist frá rakningarteymi eða sóttvarnaryfirvöldum. Ef slík fyrirmæli berast þá verður brugðist skjótt við og upplýsingum komið hratt og örugglega á framfæri,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Fólk er hvatt til að skrá sig og börn sín strax í sýnatöku finni það fyrir einkennum. Sjá nánar á heimasíðunni Covid.is.


UMMÆLI

Sambíó