29 skólar hljóta styrki í ár frá Forriturum framtíðarinnar

29 skólar hljóta styrki í ár frá Forriturum framtíðarinnar

Forritarar framtíðarinnar hafa nú lokið úthlutun styrkja fyrir þetta ár og hlutu 29 grunnskólar styrki sem nema 9 milljónum króna. 1,5 milljón rann til námskeiða innan skólanna en 7,5 milljónir til kaupa á smærri tækjum í forritunar og tæknikennslu ásamt úthlutun á notuðum tölvubúnaði.

Ljóst er að þörfin á stuðningi á þessu sviði er mikil en í ár var sótt um styrki sem í heild nema yfir 40 milljónum króna og ekki var hægt að veita öllum styrk sem sóttu um. Mestur áhugi var fyrir því að fá styrki til kaupa á minni tækjum en einnig er mikið sótt um styrki fyrir námskeið og notaðan tölvubúnað. Hægt var að sækja um í eftirfarandi flokkum:

· Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu.

· Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfisstjórum hollvina FF.

· Styrk til námsefnisgerðar í forritunar- og tæknikennslu.

· Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu (ekki tölvur).

Skólarnir sem fengu styrk í ár eru: Álftanesskóli, Bíldudalsskóli, Dalvíkurskóli, Egilsstaðaskóli, Flataskóli, Flúðaskóli, Foldaskóli, Giljaskóli, Grenivíkurskóli, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar, Gunnskóli Grunarfjarðar, Grunnskólinn í Stykkishólmi, Háaleitisskóli, Hlíðaskóli, Höfðaskóli, Kársnesskóli, Landakotsskóli, Laugarnesskóli, Myllubakkaskóli, Norðlingaskóli, Njarðvíkurskóli, Sjálandsskóli, Skarðshlíðarskóli, Táknafjarðarskóli, Valsárskóli, Varmahlíðarskóli, Vesturbæjarskóli, Víkurskóli og Vogaskóli.

„Við stöndum frammi fyrir því að hér er skortur á fólki menntuðu í upplýsingatækni. Börn og unglingar verja miklum tíma í notkun tækni en brýnt er að þjálfa og mennta þau til að nýta sér tæknina í víðari skilningi – og spilar sjóðurinn þar mikilvægt hlutverk.  Háskólar landsins útskrifa tæknimenntað fólk sem annar um það bil 50% eftirspurnar atvinnulífsins og á næstu árum er því þörf fyrir að minnsta kosti 100% aukningu á þessu sviði til þess að brúa bilið. Á sama tíma er mikill skortur á tækni- og tölvukennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins,” segir Sigfríður Sigurðardóttir formaður stjórnar Forritara framtíðarinnar.

Forritarar framtíðarinnar er sjóður sem stofnaður var 2014 með þann tilgang að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hollvinir sjóðsins í ár eru RB, Landsbankinn, CCP, Össur, Íslandsbanki og Webmo design. Vitað er að mikil þörf er á sjóðnum til að tengja saman viðskiptalífið, menntastofnanir og aðra hagsmunaaðila með það að leiðarljósi að sem flest ungmenni öðlist þá grunnhæfni sem til þarf til að verða forritarar framtíðarinnar.

Sambíó

UMMÆLI