4,3 milljónir söfnuðust á Dekurdögum á Akureyri

4,3 milljónir söfnuðust á Dekurdögum á Akureyri

Í gær afhentu fulltrúar Dekurdaga á Akureyri, fulltrúa frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis, styrk að upphæð 4,3 milljónum króna. Þetta er upphæðin sem safnaðist á Dekurdögum í október.

Kærar þakkir til allra þeirra fjölmörgu fyrirtækja og einstaklinga sem lögðu verkefninu lið með ýmsum hætti. Þetta er 13. árið sem Dekurdagar eru haldnir á Akureyri og er styrkurinn mikilvægur þáttur í rekstri Krabbameinsfélagsins.Einnig viljum við þakka alla aðstoðina við sölu á bleiku slaufunum sem velunnarar okkar í Lionsklúbbnum Sif í Eyjafjaðarsveit, Lionsklúbbnum Ylfu á Akureyri og Lionsklúbbnum Sunnu á Dalvík lögðu til söfnunarinnar,“ segir í tilkynningu frá Dekurdögum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó