43 smit á Norðurlandi eystra

43 smit á Norðurlandi eystra

43 smit vegna Covid-19 hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra í dag. Það fjölgar því aðeins um eitt smit frá tölum gærdagsins, sem þá voru 42. Þetta kemur fram á covid.is þar sem nýjustu tölur vegna smita voru birtar klukkan 13. 173 eru í sóttkví.

Í gær greindi lögreglan á Norðurlandi eystra frá því að 31 smit af 42 væru á Akureyri. Skimun á Læknastofum Akureyrar í samstarfi við Íslenska Erfðagreiningu hófst í gær, ekki er enn komið í ljós hvort smit hafi greinst í þeim skimunum en það kemur í ljós á næstu dögum.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

TENGDAR FRÉTTIR:

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó