508 kandídatar brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri um helgina

508 kandídatar brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri um helgina

Háskólahátíð – brautskráning kandídata frá Háskólanum á Akureyri fór fram í þremur athöfnum um nýliðna helgi. Samtals brautskráðust 508 kandídatar í grunn- og framhaldsnámi af þremur fræðasviðum. 

Föstudaginn 10. júní voru brautskráðir kandídatar af framhaldsnámsstigi í Hátíðarsal Háskólans og laugardaginn 11. júní voru kandídatar í grunnnámi brautskráðir í tveimur athöfnum. Í þeirri fyrri voru brautskráðir kandídatar af Heilbrigðisvísindasviði og Viðskipta- og raunvísindasviði og seinnipartinn voru brautskráðir kandídatar af Hug- og félagsvísindasviði.

Eftir tveggja ára gesta-hlé gátu kandídatar aftur boðið með sér gestum á athafnirnar og var athöfnunum streymt á Facebook og YouTube-rás háskólans. Þar að auki var upptaka af athöfnunum sýnd á sjónvarpsstöðinni N4 á sunnudag.

Í ræðu sinni gerði Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri frelsi að umræðuefni: „Eitt af því sem faraldurinn hefur kennt okkur er að kunna að meta það frelsi sem við öll höfum í okkar lýðræðissamfélagi. Sú skerðing á frelsi sem varð að vera á verstu dögum faraldursins sýndi okkur að slíkt ástand myndum við almennt ekki vilja búa við – og samt eru samfélög í heiminum í dag þar sem frelsi einstaklingsins er verulega takmarkað. Þið hafið nú reynt það á eigin skinni hversu dýrmætt þetta frelsi er. Það er því mjög mikilvægt að þið deilið þessari reynslu með framtíðarkynslóðum sem vonandi munu ekki upplifa slíkt hið sama, og gætið þess að gleyma ekki erfiðleikum faraldursins.“

Nánar má lesa um brautskráningu HA 2022 á vef skólans hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó