Prenthaus

Aðalsteinn Þórsson sýnir í Einkasafninu

Aðalsteinn Þórsson sýnir í Einkasafninu

Myndlistarsýning Aðalsteins Þórssonar í Einkasafninu Eyjafjarðarsveit opnar föstudaginn 12. ágúst kl. 17.00. Aðalsteinn er safnstjóri Einkasafnsins.

Hann hefur búið til innsetningu eða jafnvel útstillingu á plast munum úr safneigninni umhverfis Einkasafnið og inni. Jafnframt er telft fram fleiri efnum lífrænum og ólífrænum til einstakrar fagurfræðilegrar upplifunnar.

„Í verkefni mínu Einkasafninu geng ég út frá því að afgangar neyslu minnar séu menningarverðmæti, á svipaðan hátt og litið er á hafðbundna sköpun, afganga hugans sem menningarverðmæti. Ég leitast við að halda til haga öllu því sem af gengur af minni daglegu neyslu“. Þetta segir Aðalsteinn vera megin inntak Einkasafnsins. Verkefnis sem hann hefur unnið að síðan um aldamótin síðustu. Safns sem á heima í gróðursælu gildragi í Eyjafjarðarsveit. Einkasafnið leitast við að gera sýnilega stærð einstaklingsins í umhverfinu, efla umhverfisvitund og vinna að sjálfbærni.

Aðalsteinn Þórsson er fæddur 1964 á Kristnesi í Eyjafirði. Haustið 1989 hóf hann fullt nám í Myndlistaskólanum á Akureyri. Síðan hefur hann starfað að listsköpun. Aðalsteinn fór í framhaldsnám í Finnlandi og seinna í Hollandi þar sem hann lauk MFA námi frá Dutch Artinstitute, ArtEz, þá Aki2 í borginni Enchede. Í Hollandi bjó Aðalsteinn og starfaði til ársins 2016, lengst af búsettur í Rotterdam. Framan af vann hann með ólíka miðla og efni. Hann varð hallur undir hugmyndalist en sýndi um leið mikið efnisnæmi. Söfnunin sem seinna varð að Einkasafninu lét fyrst á sér kræla í kringum aldamótin 2000.

Aðalsteinn er formaður Gilfélagsins, félags um uppbyggingu menningarstarfsemi í Listagilinu á Akureyri og er í stjórn Myndlistarfélagsins á Akureyri.

Sumarlistamenn Einkasafnins. Þriðja sumarið í röð býður Einkasafnið-umhverfislistaverk upp á sýningarröð listafólks sem hefur verið boðið til dvalar í safninu og sýnt afrakstur vinnu sinnar í safnhúsinu og umhverfis það. Listafólkið hefur unnið út frá þeim áhrifum sem það hefur orðið fyrir meðan á dvölini stendur. Aðalsteinn er áttundi þessara sumarlistamanna sem sýnir í safninu. Á undan honum hafa listamennirnir: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Arna G. Valsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Joris Rademaker, Kristín Reynisdóttir og Pétur Magnússon dvalið og sýnt í safninu. Einkasafnið er sýningastaður í gróðurvin í lækjardragi með skoppandi læk, 10 km sunnan Akureyrar. Þar er boðið upp á einveru og takmarkuð þægindi í litlu húsi. 

Einkasafnið er verkefni myndlistamannsinns Aðalsteins Þórssonar. Það hýsir safn Aðalsteins „á því sem verður eftir“ af eigin neyslu. Með því er reynt að gefa eins heillega mynd af fyrirferð einstaklingsins í umhverfinu og hægt er. Leitast er við að það sé sjálfbær eining hvað varðar orkuöflun og meðferð úrgangs. Með það að markmiði að vera í jafnvægi við náttúru og umhverfi. Safnið hefur verið í núverandi húsnæði frá 2018.  

Sýningin er opin helgarnar 13. – 14.  og 20. – 21. ágúst, frá 14 – 17.

Einkasafnið stendur við syðri enda þjóðvegar 822 Kristnesvegar uþb. 10 km sunnan Akureyrar. Vefsíða: www.steini.art

UMMÆLI