Aðstoða konur við að klæðast þjóðbúningum á Minjasafninu á Akureyri

Aðstoða konur við að klæðast þjóðbúningum á Minjasafninu á Akureyri

Áttu þjóðbúning en ert ekki alveg viss um hvernig á að klæðast honum? Ertu í vandræðum með að hnýta slifsi eða festa húfu, kannski reima upphlutinn?

Félagar í Þjóðháttafélaginu Handraðanum aðstoða konur við að klæðast þjóðbúningum á Minjasafninu á Akureyri 17. júní milli 10:30 og 12:30.

Fjallkonan verður skrýdd upp úr hádegi og síðan heldur hersingin upp í Lystigarð þaðan sem gengið verður fylktu liði niður í bæ í skrúðgöngunni.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó