Origo Akureyri

Ævintýragarðurinn við Oddeyrargötu opnar í þriðja sinnLjósmynd: Hreinn Halldórsson

Ævintýragarðurinn við Oddeyrargötu opnar í þriðja sinn

Alþýðulistamaðurinn Hreinn Halldórsson hefur nú opnað á ný Ævintýragarðinn sinn við Oddeyrargötu 17 eftir vetrarlokunina. Garðurinn hefur vakið mikla lukku meðal Akureyringa og gesta bæjarins síðastliðin tvö sumur, en þetta er þriðja sumarið sem Hreinn býður gestum og gangandi að koma og skoða garðinn sinn og þau listaverk sem þar er að finna. Garðurinn er opinn alla daga frá 10:00 til 20:00 og rukkar Hreinn ekki krónu fyrir heimsóknina.

Eftirfarandi segir í tilkynningu sem Hreinn sendi Kaffinu:

Það er draumur hvers manns að skapa og miðla með öðrum. Með það í huga hef ég á síðustu árum skapað hin ýmsu verk sem ég staðset svo í garðinum við heimili mitt.

Ég er hreinræktaður alþýðulistamaður og hef því aldrei farið í listaskóla né tekið nokkurt námskeið í sköpun eða list. Verkin mín eru því sprottin upp úr engu öðru en sköpunarþörf og eru því án áhrifa frá
utanaðkomandi straumum og stefnum og standa utan hins viðurkennda listheims.

Ég hef fundið fyrir áhuga ferðamanna og ekki síður Íslendinga á að skoða verkin mín og varð það til þess að ég opnaði fyrir aðgang almennings að garðinum mínum.

Opnunin á garðinum síðast liðin tvö sumur gekk vel og var umgengni gesta til fyrirmyndar. Ég hef því ákveðið að endurtaka þessa opnun og verður garðurinn sem ég kalla Ævintýragarðinn opinn alla daga í sumar frá klukkan 10:00-20:00. Aðgangur er ókeypis eins og ávallt hefur verið og myndatökur leyfðar. Við flest verkin en stuttur texti bæði á íslensku og ensku með nafni verksins og úr hvaða ævintýri það er tekið.

Garðurinn er einkagalleríið mitt, lifandi undir berum himni. Þar er lofthæðin endalaus og lýsingin síbreytileg. Ég get fullyrt að það eru ekki mörg gallerí á Íslandi þar sem búast má við rigningu eða jafnvel snjókomu og roki þegar gengið er um galleríið og verkin skoðuð. Oftast er þó glampandi sól, logn og þægilegur útihiti eins og Akureyri er þekkt fyrir!

Verkin má flest rekja til íslenskra bókmennta og ævintýra en síðustu ár hefur hugur minn og listsköpun snúið að sígildum ævintýrum sem eru mér minnisstæð frá bernskuárum mínum. Verkin eru heimakær og vilja ekki yfirgefa garðinn en þó hafa sum þeirra sýnt sig á á Handverkshátíðinni í Eyjafjarðarsveit og í sýningarrými Amtsbókasafnsins á Akureyri.

UMMÆLI

Sambíó