Ævintýragluggi á Akureyri

Ævintýragluggi á Akureyri

Gluggainnsetning aprílmánaðar Ævintýraglugginn – Einu sinni var í Hafnarstræti 88 er helguð barnamenningarhátíð Akureyrar og er hugverk systranna Brynju Harðardóttur Tveiten myndlistarkonu og Áslaugar Harðardóttur Tveiten sem rekur skrautmunasöluna Fröken Blómfríður.  Leikföng sem hafa flest verið handleikin í gegnum nokkrar kynslóðir, gamalt skóladót og aðrir skemmtilegir munir skreyta gluggann og koma að stórum hluta frá frökeninni og æsku systranna.

„Sýningin er fyrir alla aldurshópa og tilvalið stopp í göngutúrum og vettvangsferðum. Það er ósk okkar systra að fólk upplifi svolitla töfra og að innsetningin kveiki á góðum minningum hjá fullorðnum og vekji upp forvitni þeirra sem yngri eru. Við vonumst til að sýningin verði uppspretta fyrir skemmtilegar samræður og samveru, ekki síst milli kynslóða. Þarna gefst kostur á að stíga inn í ævintýraheim, svona rétt á meðan gengið er hjá eða aðeins lengur ef staldrað er við og sérstaklega ef hugmyndarflugið er með í för.“

Allir sem eiga leið hjá eru hvattir til að gefa sér tíma til að skoða, hrífast og jafnvel bregða á leik. Leikirnir geta verið á ótal vegu eftir aldri og áhugasviðum, hér eru nokkrar hugmyndir. 

Telja kisurnar, leita að ljóninu og tígrisdýrinu, finna litlu og stóru mörgæsina og svanina tvo. Það er hægt að velta fyrir sér um hvað bangsarnir eru að spjalla, hvað dúkkurnar á þríhjólinu eru að bralla og búa til sögur í huganum.  Það gæti verið gaman að velja sér uppáhaldshlut í glugganum, það sem þykir skrýtnast, fallegast, ljótast og fyndnast, jafnvel taka myndir og kannski bera saman við hvað aðrir völdu og af hverju. 

Við hlið ævintýragluggans er rauður póstkassi. Ef litið er í hann má mögulega finna óvænta gjöf sem hver og einn má velja sér.


UMMÆLI