Aflýsa óvissustigi almannavarna fyrir Norðurland

Aflýsa óvissustigi almannavarna fyrir Norðurland

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna fyrir Norðurland vestra og Norðurland eystra. Þetta kemur fram á Facebook síðu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Ákvörðunin er tekin í samráði við lögreglustjóra viðkomandi embætta.

Óvissustigi almannavarna var lýst yfir þann 9. desember vegna slæmrar veðurspár. Það var hækkað upp í hættustig þann 10. desember en lækkað aftur í óvissustig þann 16. desember. Óvissustigi almannavarna var haldið á meðan enn var unnið að viðgerðum á mikilvægum innviðum.

Afleiðingar óveðursins urðu miklar á marga mikilvæga innviði eins og samgöngur, fjarskipti og rafmagn, sérstaklega á Norðurlandi. Veðrið olli umtalsverðu tjóni á línukerfum RARIK og Landsnets og hafði víðtækar rafmagnstruflanir í för með sér.

Dreifikerfi rafmagns á Norðurlandi er nokkuð laskað eftir áraunir síðustu vikna og viðbúð er að kerfið þoli minna en ella á næstunni. Framundan er mikil vinna við að klára endanlegar viðgerðir og ýmiss úrvinnsla. Á sumum stöðum verður ekki hægt að fara í fullnaðarviðgerðir fyrr en í sumar.

UMMÆLI

Sambíó