Ákærð fyrir líkamsárás og að ráðast að manni með sprautunál

Lögreglustöðin á Akureyri

Embætti héraðssaksóknara hefur gefið út ákæru í þremur liðum á hendur 25 ára konu búsettrar á Akureyri. Þetta kemur fram á Mbl.is. Konan er ákærð fyrir tvö ofbeldisbrot og eitt fíkniefnalagabrot.

Í fyrsta lagi er konan ákærð vegna hættulegrar líkamsárásar þann 29. ág­úst 2015 á skemmtistaðnum Café Amour í miðbæ Akureyrar. Í ákærunni er hún sögð hafa ráðist á aðra konu, togað hana niður í gólf með því að rífa í hár henn­ar, setj­ast ofan á hana þar sem hún lá á gólf­inu og haldið henni niðri. Hún á svo að hafa sparkað að minnsta kosti fimm sinn­um í höfuð kon­unn­ar og einu sinni of­ar­lega í bringu þar sem hún lá í gólf­inu og þegar hún reyndi að reisa sig við. Kon­an hlaut af lík­ams­árás­inni togn­un í hálsi, mar og yf­ir­borðsáverka á höfði, hálsi og bringu.

Í öðru lagi er hún ákærð fyrir hættubrot og hótanir en þann 5. sept­em­ber 2016  sló hún til manns með sprautu með þeim afleiðingum að sprautunálin stakkst í handarbak mannsins þegar hann setti hendur fyrir andlitið í varnarskyni. Í framhaldinu er konan sögð hafa að minnsta kostir þrisvar sinnum hlaupið að manninum með sprautuna á lofti og sagst ætla drepa hann. Konan var smituð af lifrabólgu C. Einnig hefur verið gefin út einkaréttarkrafa vegna þessa liðs, þar sem konunni er gert að greiða manninum rúmlega tvær milljónir í skaða- og miskabætur með vöxtum.

Í þriðja lagi er hún ákærð fyr­ir brot gegn lög­um um áv­ana- og fíkni­efni fyrir að hafa haft í fórum sín­um 0,85 grömm af marijú­ana. Þetta átti sér einnig stað 5.september 2016.

UMMÆLI