Ákærð fyrir umfangsmikla sölu á sígarettum, tóbaki og landa

Ákærð fyrir umfangsmikla sölu á sígarettum, tóbaki og landa

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært tvo einstaklinga fyrir nokkuð umfangsmikla sölu á sígarettum og tóbaki. Annar einstaklingurinn, kona, er einnig ákærður fyrir sölu á landa en hún er talinn hafa hagnast um 5,6 milljónir króna vegna málsins. Þetta kemur fram á vef Vísis í dag.

Henni er gefið að sök að hafa selt landa á Akureyri yfir tæplega tveggja ára tímabil, frá sumrinu 2018 til sumarsins 2020. Henni er gefið að sök að hafa selt ótilgreindum fjölda einstaklinga ótiltekið magn af landa á þessu tímabili, þar af 21 einstaklingum undir 20 ára aldri.

Henni er einnig gefið að sök að hafa 33 lítra af landa á heimili sínu, ætlað í söluskyni. Konunni er einnig gefið í sök að hafa selt ótiltekið magn af sígarettum og tóbak án heimildar á sama tímabili. Konan er sökuð um brot gegn lögum um peningaþvætti, brot gegn áfengislögum og brot gegn tóbaksvörnum.

Hinn einstaklingurinn, karlmaður, er ákærður fyrir að hafa frá sumrinu 2019 til sumarsins 2020, staðið saman með konunni að því að selja frá heimili hennar sígarettur og tóbaksvörur. Með þessu hafi hann hagnast um tæpa milljón sem konan lagði inn á hann.

Lögreglustjórinn gerir kröfu um að þau verði bæði dæmd til refsingar, auk þess sem að gerð er krafa um að gerðar verði upptækar rúmlega 150 þúsund krónur, sem lögregla lagði halda á í peningum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó