Prenthaus

Áki Egilsnes framlengir við KA

Færeyingurinn Áki Egilsnes hefur framlengt samning sinn við KA um tvö ár. Áki skrifaði undir nýjan samning í hádeginu í dag. Áki hefur leikið vel með KA í vetur en hann hefur átt við nokkur meiðsli að stríða og ekki geta beitt sér að fullu í öllum leikjum.

Áki er örvhent skytta og hefur verið drjúgur við markaskorun. Hann er í færeyska landsliðinu og á framtíðina fyrir sér en hann er einungis 22 ára gamall.

Áki mun spila með KA út tímabilið 2020. Á heimasíðu KA segir að þessi samningur sé mikilvægt skref fyrir komandi ár í handboltanum hjá KA. Þar segir einnig að von sé á fleiri leikmannafréttum og framlengingum frá KA næstu daga og vikur.

 

Sambíó

UMMÆLI