Prenthaus

Akureyrarbær mun ekki minnka framboð dýraafurða í skólamáltíðum

Akureyrarbær mun ekki minnka framboð dýraafurða í skólamáltíðum

Akureyrarbær mun ekki minnka framboð af dýraafurðum í skólamáltíðum bæjarins. Frá þessu er greint á vef RÚV en þetta kemur fram í bókun fræðsluráðs um málið frá því í gær.

Þar segir að bærinn ætli sér að halda áfram að fylgja manneldismarkmiðum Landlæknisembættis og að áhersla verði lögð á að kaupa íslenskar afurðir og helst staðbundna framleiðslu.

„Á undanförnum árum hefur hlutur kjöts farið minnkandi í fæði grunn- og leikskólabarna og er nú í boði 6 sinnum (af 21 skipti) í mánuði. Þegar kjöt er í aðalrétt er þess gætt að aðrir fæðuflokkar standi börnum til boða. Grænmeti, salat og ávextir eru í boði alla daga. Ekki er á dagskrá að hætta með kjöt í mötuneytum heldur halda áfram á markaðri vegferð,“ segir í bókun ráðsins. 

Samtök grænkera á Íslandi sendu sveitarfélögum áskorun í síðasta mánuði þar sem hvatt var til þess að hætta að bjóða upp á dýraafurðir eða draga verulega úr framboði þeirra í mötuneytum. Samkvæmt Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna veldur kjöt- og dýraafurðaframleiðsla um 15 prósent af allri losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum.

UMMÆLI

Sambíó