Prenthaus

Akureyrarbær styrkir söfnun fyrir nýjum snjótroðaraMynd: Akureyrarbær/Akureyri.is

Akureyrarbær styrkir söfnun fyrir nýjum snjótroðara

Bæjarráð hefur samþykkt að Akureyrarbær leggi söfnun fyrir nýjum snjótroðara í Kjarnaskógi lið með 15 milljóna króna styrk. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur undanfarna mánuði safnað fyrir nýjum snjótroðara en sá gamli er kominn til ára sinna og annar illa hlutverki sínu. Markmiðið með nýjum snjótroðara er að sinna betur gestum skógarins og því litríka og vaxandi útivistarlífi sem þeir stunda.

Nýr snjótroðari kostar um 35 milljónir króna og miðar söfnuninni ágætlega. Markmiðið er að hafa náð að ljúka fjármögnun þann 22. febrúar næstkomandi og eru fyrirtæki, einstaklingar og önnur sveitarfélög hvött til að taka þátt í söfnuninni. Nálgast má nánari upplýsingar um söfnunina með því að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI