Banaslys á Eyjafjarðabraut eystri

Banaslys á Eyjafjarðabraut eystri

Alvarlegt umferðarslys varð á Eyjafjarðabraut eystri , skammt norðan við Laugaland skömmu eftir klukkan 13:00 í gær. Þarna hafði bíll lent út af og voru tveir aðilar sem í honum voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra á Facebook.

Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og er hún á frumstigi og ekki frekari upplýsingar að hafa að sinni.

Sambíó

UMMÆLI