Akureyringar eru hvattir til þess að mæta á slökkvistöðina á Akureyri í dag í bólusetningu gegn kórónuveirunni með bóluefni Janssen. Í morgun var dræmari mæting í bólusetningu en vonast var til og eru allir Akureyringar hvattir til þess að mæta sem fyrst. Frá þessu er greint á Akureyri.net.
„Síðustu daga hefur mæting verið góð og bólusetning gengið mjög vel, en þetta hefur verið rólegt í morgun. Við getum tekið við miklu fleirum og ég vil því hvetja alla til að mæta – því fyrr því betra,“ sagði Inga Berglind Birgisdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri, þegar Akureyri.net leit við á Slökkvistöðinni í morgun.
Bólusetning stendur til klukkan 14.00 í dag. Fólk fékk boð um að mæta á ákveðnum tíma en á Akureyri.net kemur fram að Inga Berglind hvetji alla til að mæta sem fyrst þrátt fyrir það.
UMMÆLI