Prenthaus

Akureyringar klaufar gegn Aftureldingu

Kristján skoraði 6 mörk í gær

Kristján skoraði 6 mörk í gær

Í gærkvöldi mætti botnlið Akureyrar toppliði Aftureldingar þegar liðin skildu jöfn 23-23. Akureyringar voru með yfirhöndina allan leikinn og Mosfellingar náðu til að mynda aldrei forrystu í leiknum.

Sigþór Gunnar Jónsson var að spila sinn fyrsta leik hjá Akureyri og stóð sig vel. Akureyringar byrjuðu vel en urðu fyrir áfalli í stöðunni 6-8 þegar Stropus meiddist og var leiddur af velli. 

Akureyringar héldu þó forystunni í 2-3 mörkum og Tomas Olavsson markmaður Akureyringar var frábær í markinu. Í hálfleik var Akureyri með 5 marka forskot 8-13.

Mosfellingar söxuðu hægt og rólega á forskotið í seinni hálfleik og þegar 5 mínútur lifðu leiks var staðan 20-23 Akureyri í vil. Þegar rúm mínúta var eftir jöfnuðu Afturelding í 23-23 og urðu það lokatölur.

Úrslitin hljóta að vera vonbrigði fyrir Akureyringar miðað við hvernig leikurinn spilaðist en verður þó að segjast að liðið lítur mun betur út en það gerði í upphafi vetrar.

Markahæstu leikmenn Akureyri:

 Kristján Orri Jóhannsson 6
Mindaugas Dumcius 6
Róbert Sigurðsson 2
Andri Snær Stefánsson 2
Friðrik Svavarsson 2
Arnór Þorsteinsson 2

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó