Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Akureyringur vann 18 milljónir

Akureyringur vann 18 milljónir

Það var glúrinn tippari sem fékk 13 rétta á getraunaseðli ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu um helgina og vann tæpar 18 milljónir króna. Tipparinn keypti miðann í getraunaappi Lengjunnar.

Er þetta hæsti vinningur sem unnist hefur á Enska getraunaseðilinn sem keyptur er í Lengjuappinu. Tipparinn tvítryggði 7 leiki, þrítryggði 1 leik og var með eitt merki á 5 leikjum. Alls kostaði getraunaseðillinn 5.760 krónur.

Tipparinn er frá Akureyri og er stuðningsmaður KA.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó