Prenthaus

Allir reikningar frá Akureyrarbæ innheimtir með kröfu í netbankaRáðhús Akureyrarbæjar. Ljósmynd: Bjarki Brynjólfsson.

Allir reikningar frá Akureyrarbæ innheimtir með kröfu í netbanka

Akureyrarbær mun ekki bjóða áfram upp á að greiða reikninga frá bænum með boðgreiðslum á kreditkorti. Frá og með þessu hausti verða allir reikningar bæjarins innheimtir með kröfu í netbanka.

„Um síðustu áramót var tilkynnt um þessar breytingar varðandi fasteignagjöld og reikninga vegna heimaþjónustu velferðarsviðs. Frá og með septembermánuði gildir það sama um reikninga frá fræðslusviði, það er vegna leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Þetta eru síðustu flokkar reikninga sem hægt hefur verið að greiða með boðgreiðslum á kort,“ segir í tilkynningu bæjarins.

„Almennt verða allir reikningar frá bænum greiddir í gegnum netbanka, en eftir sem áður geta þau sem þess óska fengið prentaða greiðsluseðla. Fyrir þau sem kjósa þægindi er athygli vakin á þeim möguleika að skrá kröfur í beingreiðslu í netbankanum. Þá þarf ekki að hugsa um þær heldur skuldfærast þær af reikningi á eindaga. Tilgangurinn með þessum breytingum er fyrst og fremst að einfalda innheimtu og draga úr kostnaði bæjarins.“

UMMÆLI