Amtsbókasafnið á 196 ára afmæli í dag

Amtsbókasafnið á 196 ára afmæli í dag

Amtsbókasafnið á Akureyri er 196 ára í dag, 25. apríl 2023. Safnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað árið 1827. Það opnaði þó ekki í núverandi húsnæði fyrr en í nóvember árið 1968.

„Frá því að Amtsbókasafnið komst í viðunandi húsnæði hefur starfsemin vaxið og dafnað jafnt og þétt. Viðbyggingin flotta var tekin í notkun í mars 2004 og gerir alla aðstöðu miklu betri, hvort sem um er að ræða starfsmenn eða gesti. Sýningar, fyrirlestrar, námskeið og klúbbar eru stór hluti af starfinu sem er auðvitað miklu meira en að lána bara út safnefni. Reyndar hefur safnið þróast ört og við erum afar stolt af því. Þetta er safnið okkar allra,“ segir á vef Amtsbókasafnsins.

Á vef Amtsbókasafnsins má finna hlekki á heimildamynd um safnið og einnig undirsíðu um söguna.

Sambíó

UMMÆLI