Origo Akureyri

Amtsbókasafnið á Akureyri leitar eftir aðilum til að annast rekstur á veitingastofu

Amtsbókasafnið á Akureyri leitar eftir aðilum til að annast rekstur á veitingastofu

Amtsbókasafnið á Akureyri leitar eftir aðila/aðilum til að annast rekstur á veitingastofu í húsnæði Amtsbókasafnsins, frá 1. júlí 2024 til þriggja ára, með möguleika á framlengingu til tveggja ára til viðbótar eða til 30. júní 2029. Rekstur veitingastofunnar yrði sjálfstæð eining en jafnframt mikilvægur hluti af bókasafninu.

Góð aðstaða er á fyrstu hæð Amtsbókasafnsins í Brekkugötu 17, en bjóðendum er boðið í vettvangsskoðun þann 27. maí kl. 13:00, mæting í anddyri Amtsbókasafns, Brekkugötu 17.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með fimmtudeginum 16. maí 2024.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins.

Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!

Tilboðum skal skilað rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 10:50 þann 7. júní 2024.

Nánari upplýsingar um framkvæmd útboðsins eða útboðsgögn veitir Hrafnhildur Sigurðardóttir (hrafnhildursig@akureyri.is) á fjársýslusviði Akureyrarbæjar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó