KIA

Andri Snær besti leikmaður Akureyrar í vetur

Andri Snær Stefánsson

Akureyri Handboltafélag hélt lokahóf sitt í gærkvöldi þar sem þeir leikmenn sem þóttu hafa skarað fram úr í vetur voru verðlaunaðir en Akureyri lauk keppni í neðsta sæti Olís-deildar karla og mun því leika í næstefstu deild á næstu leiktíð.

Fyrirliði liðsins, Andri Snær Stefánsson, var valinn besti leikmaður liðsins en þetta er í þriðja skipti sem hann hlýtur þessa viðurkenningu að því er segir á heimasíðu félagsins. Þessi kraftmikli vinstri hornamaður skoraði 83 mörk í 27 leikjum í Olís-deildinni í vetur.

Aðrir sem fengu verðlaun

Efnilegasti leikmaður: Patrekur Stefánsson
Besti varnarmaður: Róbert Sigurðarson
Besti leikmaður: Andri Snær Stefánsson
Besti sóknarmaður: Mindaugas Dumcius

Ungmennalið Akureyrar:
Besti leikmaður:
Arnþór Gylfi Finnsson
Efnilegasti leikmaður: Hafþór Vignisson

Talið frá vinstri: Patrekur Stefánsson, Róbert Sigurðarson, Andri Snær Stefánsson, Mindaugas Dumcius. Mynd: akureyri-hand.is

UMMÆLI