Andri Snær tekur við KA/Þór

Andri Snær tekur við KA/Þór

Andri Snær Stefánsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks KA/Þór í handbolta. Hann mun taka að sér stjórn liðsins fyrir komandi vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA.

Þar segir að mikill uppgangur hafi verið hjá kvennaliðinu undanfarin ár og að ljóst sé að spennandi vetur sé framundan.

KA/Þór tryggði sér þátttökurétt í deild þeirra bestu veturinn 2017-2018 eftir yfirburðarsigur í Grill66 deildinni þar sem liðið tapaði ekki leik. Undanfarna tvo vetur hefur liðið fest sig í sessi sem eitt af bestu liðum landsins og fór meðal annars í úrslit Coca-Cola bikarsins í vetur.

Andri Snær sem hefur verið fyrirliði karlaliðs KA undanfarin ár byrjaði snemma í þjálfun og hefur síðustu þrjú ár stýrt ungmennaliði KA sem vann sigur í 2. deildinni veturinn 2018-2019 og festi sig í sessi í Grill66 deildinni á nýliðnum vetri. Samningur Andra við KA/Þór er til tveggja ára.

„Það er ekki nokkur spurning að það er spennandi vetur framundan hjá kvennaliði KA/Þórs en á dögunum skrifaði landsliðskonan Rut Arnfjörð Jónsdóttir undir tveggja ára samning við liðið. Á sama tíma og við bjóðum Andra velkominn til starfa hjá KA/Þór þökkum við Gunnari Líndal Sigurðssyni fyrir hans störf með liðið á nýliðnum vetri,“ segir á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI