Aníta Hirlekar opnar sýninguna Bleikur og grænn

Aníta Hirlekar

Laugardaginn 19. maí kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi sýning Anítu Hirlekar, Bleikur og grænn. Í hugmyndafræði Anítu sameinast handverk og tískuvitund með einkennandi hætti. Listrænar litasamsetningar og handbróderaður stíll eru áberandi þættir í hönnun hennar.

Það er vel við hæfi að nota orðfæri listfræðinnar þegar hönnun Anitu er skoðuð. Anita sækir innblástur í myndlist og tekst á við verkefni sín á forsendum hennar. Vísun til myndhöggvarans er til að mynda ekki fráleit þegar horft er til Anitu; sniðin hennar eru gjarnan skúlptúrísk. Þau taka sitt eigið form en fylgja ekki endilega líkamanum.

Aníta Hirlekar lauk BA námi í fatahönnun með áherslu á textílprent 2012 og MA gráðu í textílhönnun fyrir tískufatnað frá Central Saint Martins í London 2014. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði á Íslandi og erlendis, m.a. á tískuvikunni í London og París, Espoo Museum of Modern Art í Finnlandi og í Hönnunarsafni Íslands. Aníta var tilnefnd til Menningarverðlauna DV 2015 og hönnun hennar var í forvali fyrir Hönnunarverðlaun Íslands 2015. Hún hlaut Fashion Special Prize í International Talent Support hönnunarkeppninni á Ítalíu 2014.

Sýningin stendur til 16. september og verður opin alla daga kl. 10-17. Leiðsögn um sýninguna verður á fimmtudögum kl. 12.15-12.45.

UMMÆLI

Sambíó