Anna Kolbrún Árnadóttir látin

Anna Kolbrún Árnadóttir látin

Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, fyrrum alþing­ismaður Miðflokksins í Norðaust­ur­kjör­dæm­is, lést á Sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri í gær­morg­un, 53 ára að aldri. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, greindi frá andláti hennar við upphaf þingfundar í dag.

Önnu Kol­brún­ar verður minnst við upp­haf þing­fund­ar næst­kom­andi mánu­dag. Hún sat á þingi fyrir Miðflokkinn kjörtímabilið 2017–2021 en var varaþingmaður flokksins á þessu kjörtímabili og tók síðast sæti á þingi í mars.

Anna Kolbrún lætur eftir sig eiginmann, Jón Braga Gunnarsson, eina uppkomna dóttur og þrjú stjúpbörn.

Sambíó

UMMÆLI