Anna María keppir á heimsmeistaramótinu í bogfimiMynd: vma.is

Anna María keppir á heimsmeistaramótinu í bogfimi

Anna María Alfreðsdóttir úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri mun keppa á heimsmeistaramótinu í bogfimi í Yankton í Suður-Dakota í Bandaríkjunum í næstu viku. Anna ræddi bogfimina í viðtali á vefsíðu VMA í dag en þar er hún nemandi á fjölgreinabraut.

Anna María hefur aðeins æft bogfimi í um tvö ár en hún hefur prófað ýmsar íþróttir í gegnum tíðina, meðal annars sund. Hún segir í samtali við vma.is að hún finni sig vel hjá Akri.

„Þetta byrjaði allt á því að bróðir minn fór að æfa bogfimi og síðan fór pabbi minn að æfa líka. Svo hætti bróðir minn að æfa og ég ákvað að fara í þetta í hans stað. Það eru fastir æfingatímar þrisvar í viku en ég tek einnig aukaæfingar. Einnig fer ég í ræktina til þess að styrkja mig því það skiptir miklu máli að hafa styrkinn í þetta og einnig er mikilvægt að hafa gott þol,“ segir Anna María.

Í bogfimi er keppt í þremur bogaflokkum. Bogfimisamband Íslands valdi Önnu Maríu fyrir Íslands hönd til þess að keppa í svokölluðum trissuboga á heimsmeistaramótinu. Hinir tveir bogfimiflokkarnir eru sveigbogi og berbogi.

Þrátt fyrir að lítið hafi verið um bogfimimót síðustu misseri vegna Covid faraldursins hefur Anna fengið nokkur tækifæri til þess að láta ljós sit skína. Hún vann til að mynda til bronsverðlauna á Norðurlandameistaramóti ungmenna á dögunum. Þá sló hún nýverið Íslandsmet í bæði U21 undankeppni og útsláttarkeppni trissuboga kvenna.

Heimsmeistaramótið í bogfimi verður í Yankton í næstu viku. „Ég er mjög spennt. Ég ætla fyrst og fremst að hafa gaman að þessu og ég stefni að því að ná mínum besta persónulega árangri. Miðað við æfingarnar núna fyrir mótið finnst mér ég eiga eitthvað inni,“ segir Anna María.

Faðir hennar og þjálfari, Alfreð Birgisson, fer líka á heimsmeistaramótið til þess að keppa. Þau munu einnig keppa saman í parakeppni á mótinu.

Nánar er rætt við Önnu Maríu á vef VMA.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó