Árangursríkt og skemmtilegt Akureyrarmót UFA og Norðlenska

Árangursríkt og skemmtilegt Akureyrarmót UFA og Norðlenska

Akureyrarmót UFA og Norðlenska var haldið 21. ágúst síðastliðinn í veðurblíðu. Níutíu keppendur mættu til leiks, flestir voru iðkendur UFA en einnig mættu hópar frá Þingeyingum, Skagfirðingum og Húnvetningum auk annarra sem sumir hverjir komu lengra að.

Íslandsmet í sleggjukasti 14 ára stúlkna (3,0 kg) var slegið af Birnu Jónu Sverrisdóttur UÍA, þegar hún kastaði sleggjunni 41,98 metra.

Keppt var í sjö greinum í flestum aldursflokkum 10 ára og eldri og því var dagurinn strembinn hjá þeim sem kepptu í flestum eða öllum greinum sem í boði voru. Keppendur stóðu sig reglulega vel og mikið var um bætingar. Öll úrslit má finna á eftirfarandi hlekk: Mótaforrit Þórs

Fyrir yngstu keppendurnar var boðið upp á þrautabraut þar sem þau kepptu í spretthlaupi, langstökki, skutlukasti, reipitogi og hindrunarhlaupi. Krakkarnir voru kappsfull og höfðu bæði þau og foreldrar þeirra gaman af, enda hafa þau eflst á fjölbreyttum frjálsíþróttaæfingum sumarsins.

„Stjórn UFA þakkar keppendum og starfsmönnum mótsins kærlega fyrir árangursríkt og skemmtilegt mót,“ segir í tilkynningu UFA.

Sambíó

UMMÆLI