Arnar Grétarsson áfram hjá KAMynd: Sævar Geir/ka.is

Arnar Grétarsson áfram hjá KA

Knattspyrnudeild KA og Arnar Grétarsson hafa gengið frá samkomulagi um að Arnar muni áfram stýra liði KA á næstu leiktíð. Þetta kemur fram á vef KA í dag.

KA liðið situr í 3. sæti Pepsi Max deildarinnar fyrir lokaumferðina sem fer fram á morgun en þá mætir KA liði FH á Greifavellinum á Akureyri og hefst leikurinn 14:00. Sigur í leiknum myndi tryggja næstbesta árangur félagsins í sögunni auk þess sem að þriðja sætið gæti gefið þátttökurétt í Evrópukeppni að ári.

„Arnar sem tók við liðinu um mitt seinasta sumar hefur komið af miklum krafti inn í félagið og lyft öllu starfi okkar upp á hærra plan. Ekki einungis hefur Arnar leitt árangur liðsins innan vallar, sem verið hefur til fyrirmyndar, heldur hefur hann komið með sína miklu þekkingu á alþjóðlegri knattspyrnu inn í allt starfið í kringum knattspyrnudeild KA. Þannig er allt þjálfarateymið skipulagt til að þroska leikmenn og liðsheild þannig að bæði félagið sem og einstaklingar innan liðanna nái stöðugt að bæta sig,“ segir í tilkynningu á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó