Arnar Grétarsson tekur við KA

Arnar Grétarsson tekur við KA

Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Grétarsson mun taka við liði KA og stýra liðinu út keppnistímabilið í Pepsi Max deild karla. Arnar tekur við liðinu af Óla Stefáni Flóventssyni sem hætti þjálfun liðsins fyrr í dag.

Á vef KA segir:

Arnar Grétarsson er knattspyrnuáhugamönnum kunnugur. Hann lék lengi vel sem atvinnumaður, bæði í Grikklandi og Belgíu og hann hefur einnig leikið 72 landsleiki fyrir Íslands hönd. Sem þjálfari hefur hann stýrt Breiðablik hér á landi og KSV Roeselare í Belgíu.

Aðrar breytingar verða ekki á þjálfarateyminu en fyrir í því eru þeir Hallgrímur Jónasson, Pétur Kristjánsson, Branislav Radakovic og Halldór Hermann Jónsson.

UMMÆLI