Arnfríður Gígja verður aðstoðaryfirlögregluþjónn yfir rannsóknardeild

Arnfríður Gígja verður aðstoðaryfirlögregluþjónn yfir rannsóknardeild

Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir hefur verið sett sem aðstoðaryfirlögregluþjónn yfir rannsóknardeild hjá embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra í eitt ár frá og með 1. október 2021. Bergur Jónsson sem áður gegndi stöðunni er í ársleyfi vegna starfa sinna fyrir ríkislögreglustjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra á Facebook.

Þar segir um Arnfríði: Arnfríður Gígja er fædd og uppalin í Mývatnssveit og er stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Gígja er lögreglumaður og lögfræðingur að mennt auk þess sem hún hefur lokið stjórnunarnámi. Hún hefur síðustu árin starfað sem aðstoðarsaksóknari hjá embætti Héraðssaksóknara. Þá er gaman að segja frá því að aðeins fjórar konur gegna stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns á landinu öllu og er Gígja vel að því komin. Við tökum vel á móti Gígju og vonum að henni líði vel í höfuðstað Norðurlands.

UMMÆLI