Arnór og Bruno áfram hjá KABjarni Jónasson, stjórnarmaður með Arnóri Ísak. Mynd: KA.is

Arnór og Bruno áfram hjá KA

Arnór Ísak Haddsson og Bruno Bernat framlengdu í gær samninga sína við handknattleiksdeild KA til tveggja ára. Í tilkynningu á vef KA segir að það séu frábær tíðindi fyrir klúbbinn að þessir ungu og uppöldu leikmenn taki slaginn næstu tvö árin með KA.

Báðir spiluðu þokkalegt hlutverk á síðasta ári þegar að KA komst alla leið í bikarúrslitin. Þeir eru báðir uppaldir í gegnum yngriflokkastarf félagsins og eru fæddir árið 2002. Arnór hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands í gegnum tíðina og Bruno hefur verið einn efnilegasti markmaður landsins. Arnór spilar sem leikstjórnandi og hefur gríðarlegan kraft og sprengju sem varnarmenn andstæðinganna óttast oft og tíðum. Eitt helsta kennimerki Bruno, fyrir utan frábærar vörslur, eru magnaðar sendingar upp völlinn sem gefa oft góð hraðaupphlaupsmörk.

Bjarni Jónasson, stjórnarmaður með Bruno Bernat

UMMÆLI

Sambíó