Ásgeir með U21 til Ítalíu og Georgíu

Ásgeir á leið í ferðalag. Mynd: ka.is

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðs karla í fótbolta, valdi í dag hóp sem mætir Georgíu og Sádi-Arabíu í vináttuleikjum í lok mánaðarins.

Ásgeir Sigurgeirsson, framherji KA, er í hópnum og er eini fulltrúi Akureyararliðanna að þessu sinni. Ásgeir var einn besti leikmaður KA þegar liðið vann Inkasso-deildina á síðustu leiktíð.

Íslenska U-21 árs landsliðið leikur tvo leiki við Georgíu, dagana 22. og 25.mars. Að því loknu halda strákarnir yfir til Ítalíu þar sem þeir munu mæta jafnöldrum sínum frá Sádi-Arabíu 28.mars.

Hópurinn í heild sinni

Markverðir:
Jökull Blængsson, Fjölnir
Sindri Kristinn Ólafsson, Keflavík

Aðrir leikmenn:
Albert Guðmundsson, PSV
Alfons Sampsted, Norrköping
Aron Ingi Kristinsson, ÍA
Ari Leifsson, Fylkir
Arnór Gauti Ragnarsson, ÍBV
Axel Óskar Andrésson, Bath City
Ásgeir Sigurgeirsson, KA
Birnir Snær Ingason, Fjölnir
Grétar Snær Gunnarsson, FH
Hans Viktor Guðmundsson, Fjölnir
Hörður Ingi Gunnasson, FH
Júlíus Magnússon, Heerenveen
Jón Dagur Þorsteinsson, Fulham
Kristófer Konráðsson, Stjarnan
Orri Sveinn Stefánsson, Fylkir
Sindri Scheving, Valur
Steinar Þorsteinsson, ÍA
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA
Viktor Karl Einarsson, AZ Alkmaar
Ægir Jarl Jónasson, Fjölnir

Sambíó

UMMÆLI