Origo Akureyri

Ásgeir skrifar undir nýjan samning hjá KA

Ásgeir skrifar undir nýjan samning hjá KA

Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði karlaliðs KA í knattspyrnu, skrifaði í vikunni undir nýjan samning við félagið sem gildir út árið 2025.

„Þetta eru stórkostlegar fréttir enda Geiri algjör lykilmaður í okkar liði og stórkostlegur karakter sem hefur átt mikinn þátt í uppgangi KA-liðsins undanfarin ár,“ segir í tilkynningu á vef KA.

Ásgeir er 25 ára gamall framherji sem kom fyrst á láni til KA frá norska liðinu Stabæk sumarið 2016. Hann sló heldur betur í gegn er KA tryggði sér loksins sæti í efstu deild með sannfærandi sigri í Inkasso deildinni. Ásgeir skoraði 8 mörk það sumarið og þar á meðal sigurmarkið gegn Selfyssingum sem tryggði úrvalsdeildarsætið.

Síðan þá hefur Ásgeir verið lykilmaður í liði KA í efstu deild og hefur nú leikið 127 leiki í deild og bikar fyrir félagið og gert í þeim 33 mörk. Ásgeir kemur frá Húsavík þar sem hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Völsung sumarið 2012 aðeins 15 ára gamall. Þaðan gekk hann í raðir norska liðsins Stabæk þar sem hann dvaldi í tvö ár. Ásgeir er því þrátt fyrir ungan aldur kominn með ansi mikla reynslu í meistaraflokki.

„Ekki nóg með að vera gríðarlega öflugur á vellinum þá er Geiri til fyrirmyndar utan vallar og tekur virkan þátt í starfi félagsins og alveg ljóst að það eru gríðarlega jákvæðar fréttir fyrir okkur KA-menn að njóta áfram krafta hans næstu árin,“ segir á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó