Áslaug Ásgeirsdóttir nýr rektor Háskólans á Akureyri

Áslaug Ásgeirsdóttir nýr rektor Háskólans á Akureyri

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð rektor Háskólans á Akureyri frá og með 1. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HA, þar sem einnig segir:

Skipan Áslaugar er samkvæmt ákvörðun Háskólaráðs frá 2. apríl síðastliðnum um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra samþykkti tillöguna og tekur Áslaug við rekstorsstöðunni 1. júlí næstkomandi. Alls bárust fimm umsóknir um embættið en skipað er til fimm ára.

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir starfar í dag sem prófessor við Bates Collage, Lewiston, Maine og hefur starfað þar síðan árið 2001. Áslaug hefur gegnt þar ýmsum stjórnunarstörfum, s.s. starfi aðstoðarrektors og starfi deildarforseta. Áslaug er með doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Washington University in St. Louis í Bandaríkjunum. Auk þess að hafa unnið við kennslu og rannsóknir, hefur Áslaug víðtæka stjórnunarreynslu. Hún hefur í gegnum störf sín hjá Bates College m.a. komið að stjórnun rannsóknasjóðs, endurskoðun á nefndakerfi, yfirumsjón með námsmati, endurskipulagningu deildar og fleiri verkefnum bæði sem stjórnandi og prófessor. Áslaug hefur einnig starfað sem gestaprófessor við Háskólasetur Vestfjarða og sem Fulbright fræðimaður hjá Háskóla Íslands. Áslaug er þakklát trausti Háskólaráðs til síns, og hún hlakkar til að hefja störf við Háskólann á Akureyri, og setjast að á Akureyri. „Háskólinn á Akureyri er góður skóli, sem hefur ákveðna sérstöðu í íslensku háskólasamfélagi, og verður gaman að byggja á þeim grunni til framtíðar,“ segir Áslaug.


UMMÆLI

Sambíó