Origo Akureyri

Auður, Lilja og Stefán í landsliðsverkefni í strandblaki

Auður, Lilja og Stefán í landsliðsverkefni í strandblaki

Þrír fulltrúar frá KA munu spila fyrir Íslands hönd á strandblaksmóti á vegum NEVZA í Manchester í Englandi 24. til 28. júní næstkomandi. Ísland sendir alls sjö lið til leiks og fara því 14 ungmenni á mótið á vegum Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA.

Þær Auður Pétursdóttir og Lilja Rut Kristjánsdóttir frá KA mynda saman eitt lið og þá keppir Stefán Máni Hákonarson, einnig úr KA, með honum Sigurði Kára Harðarsyni úr Hamri.

„Það er ljóst að það er spennandi mót framundan en auk Íslands keppa lið frá Írlandi, Skotlandi, Englandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Aðalþjálfari liðanna er Borja González og honum til aðstoðar er Matthildur Einarsdóttir. Óskum okkar flottu fulltrúum til hamingju sem og góðs gengis á mótinu,“ segir á vef KA.

Netsprengja NTC
Sambíó

UMMÆLI