Prenthaus

Bæjarráð Akureyrar krefst þess að neyðarbrautin verði opnuð

Bæjarráð Akureyrar krefst þess að neyðarbrautin verði opnuð

Bæjarráð Akureyrar fjallaði í morgun um stöðu Reykjavíkurflugvallar og lokun neyðarbrautar. Bæjaryfirvöld eru ekki sátt við stöðuna og krefjast þess að brautin verði opnuð aftur þar til önnur og jafngóð lausn finnst.

Eftirfarandi var bókað:

„Í höfuðborg Íslands er eina hátæknisjúkrahús landsins. Það er því lífsnauðsynlegt að þangað sé ávallt greið leið með sjúklinga hvort sem er af höfðuborgarsvæðinu eða landsbyggðunum. Lokun Neyðarbrautarinnar svokölluðu á Reykjavíkurflugvelli hefur á undangengnum vikum leitt til þess að sjúkraflugvélar hafa ekki getað lent í Reykjavík né annars staðar á Suðvestur horninu með alvarlega veika einstaklinga, sem hafa þurft á bráðnauðsynlegri umönnun að halda á þessu eina hátæknisjúkrahúsi okkar landsmanna. Það er því ófrávíkjanleg krafa bæjarráðs Akureyrarkaupstaðar að Neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verði opnuð aftur þar til önnur og jafngóð lausn finnst. Bæjarráð skorar á Borgarstjórn Reykjavíkurborgar, innanríkisráðherra og Alþingi að stuðla að því að svo geti orðið.“

Sambíó

UMMÆLI