Bæjarstjórn Akureyrar fordæmir innrásina í Úkraínu – Reiðubúin til móttöku flóttafólks

Bæjarstjórn Akureyrar fordæmir innrásina í Úkraínu – Reiðubúin til móttöku flóttafólks

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti fyrr í vikunni bókun þar sem innrás Rússa í Úkraínu er harðlega fordæmd og lýsir sig um leið reiðubúna til móttöku á flóttafólki frá Úkraínu. Bókun bæjarstjórnar er svohljóðandi:

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar fordæmir harðlega innrás Rússa í Úkraínu og brot þeirra á sjálfstæði og sjálfræði þjóðarinnar. Bæjarstjórn lýsir yfir fullum stuðningi við úkraínsku þjóðina og lýsir sig jafnframt reiðubúna til móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Bæjarstjórn tekur einróma undir yfirlýsingu Evrópusamtaka sveitarfélaga.

Yfirlýsing Evrópusamtaka sveitarfélaga.

Sambíó

UMMÆLI