Baldvin Þorsteinsson nýr formaður stjórnar Samherja hf.

Baldvin Þorsteinsson nýr formaður stjórnar Samherja hf.

Á aðalfundin 24. ágúst síðastliðinn var ný stjórn Samherja hf. kjörin. Þær breytingar urðu á stjórninni að þessu sinni að Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarformaður Samherja hf., lét af störfum eftir að hafa setið í stjórn fyrirtækisins samfellt frá árinu 2001 og þar af sem stjórnarformaður frá 2005. Baldvin Þorsteinsson tekur sæti Eiríks í stjórninni og er nýr stjórnarformaður Samherja hf. Eiríkur mun hér eftir einbeita sér að verkefnum Kaldbaks ehf. þar sem hann gegnir stöðu framkvæmdastjóra.

Á aðalfundinum var ákveðið að greiða út arð til hluthafa sem nemur 3,7% hagnaðar ársins eða jafnvirði 558 milljóna króna. Er þetta í fyrsta sinn í fjögur ár sem greiddur er arður til hluthafa.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja afhenti Eiríki S. Jóhannssyni blómvönd á aðalfundinum

„Á þessum rúmlega tuttugu árum sem ég hef verið í stjórn hefur Samherji hf. vaxið og dafnað. Ekki síst vegna þess að fyrirtækið hefur ráðið til sín öflugt starfsfólk í fremstu röð. Þá hafa stjórnendur Samherja hf. borið gæfu til að verja afkomu fyrirtækisins til uppbyggingar þess með fjárfestingum í rekstrinum. Þetta hefur skilað sér í betri og hagkvæmari skipum, innleiðingu tækninýjunga bæði á sjó og í landvinnslu og bættu vinnuumhverfi starfsfólks. Þessi ár hafa verið einstaklega ánægjuleg en í senn lærdómsrík. Ég vil þakka Þorsteini Má, forstjóra, fyrir gott og gefandi samstarf. Þá vil ég þakka starfsfólki, stjórnarmönnum og hluthöfum fyrirtækisins fyrir ánægjulega samvinnu,” segir Eiríkur S. Jóhannsson.

Þorsteinn Már Baldvinsson segir að reynsla og þekking Eiríks hafi verið afar dýrmæt fyrir Samherja hf. „Framlag Eiríks til félagsins hefur verið framúrskarandi gegnum árin. Það var mikið lán að fá hann inn í stjórnina á sínum tíma og geta þannig notið liðsinni hans í mörgum krefjandi verkefnum sem hafa haft mikla þýðingu fyrir félagið á tímabilinu,“ segir Þorsteinn Már.

Baldvin Þorsteinsson og Eiríkur S. Jóhannsson

Baldvin Þorsteinsson, nýkjörinn stjórnarformaður, segir ýmsar áskoranir framundan enda spennandi verkefni í farvatninu hjá Samherja hf.

„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og er stoltur að taka við sem formaður stjórnar Samherja hf. Ég byrjaði fyrst að vinna hjá félaginu ungur að árum og hef unnið margvísleg ólík störf hjá því gegnum árin. Ég hlakka til að starfa með föður mínum og öllu því frábæra starfsfólki sem er hjá Samherja hf. að áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins,“ segir Baldvin.

Auk Baldvins Þorsteinssonar voru kjörin í stjórnina þau Ásta Dís Óladóttir, Dagný Linda Kristjánsdóttir, Kristján Vilhelmsson og Óskar Magnússon, sem er varaformaður stjórnar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó