Benedikt búálfur á SpotifyMynd: Akureyri.is

Benedikt búálfur á Spotify

Söngleikurinn Benedikt búálfur er mættur í heild sinni á Spotify með nýrri og uppfærðri tónlist. Sögumaður plötunnar er Karl Ágúst Úlfsson.

Tónlistin er spiluð af 40 manna sinfóníuhljómsveit Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Eins og áður er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri en Þorvaldur gerði fimm ný lög fyrir uppsetninguna.

Söngleikurinn er samstarf Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Með hlutverk Benedikts búálfs fer Árni Beinteinn Árnason. Aðrir leikarar eru Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Hjalti Rúnar Jónsson, Vala Guðnadóttir, Birna Pétursdóttir og Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli. Söngleikurinn er sýndur í Samkomuhúsinu en vegna samkomutakmarkana hefur verið hlé á sýningum.

UMMÆLI