Benedikt Búálfur hlaut Eddu-verðlaun

Benedikt Búálfur hlaut Eddu-verðlaun

Söngleikurinn Benedikt búálfur hlaut Eddu-verðlaun sem besta sjónvarpsefni ársins á Edduverðlaununum sem fram fóru á sunnudagskvöldið. Söngleikurinn, sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi í Samkomuhúsinu í mars í fyrra, er afar vinsæll í Sjónvarpi Símans Premium.

Ævintýralegi og vinsæli söngleikurinn eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson er einn allra þekktasti barnasöngleikur þjóðarinnar og hefur töfrandi saga og grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar unnið hug og hjörtu íslenskra barna á öllum aldri.


UMMÆLI

Sambíó