Benedikt búálfur kveður Samkomuhúsið

Benedikt búálfur kveður Samkomuhúsið

Nú er komið að síðustu sýningarhelginni af fjölskyldusöngleiknum Benedikt búálfur hjá Leikfélagi Akureyrar. Sýningin hefur algjörlega slegið í gegn og hefur verið sýnd um 70 sinnum í Samkomuhúsinu þegar yfir lýkur.

Leikarinn Árni Beinteinn, sem leikur sjálfan Benedikt búálf, segir erfitt að kveðja sýninguna. „Hópurinn er algjörlega einstakur og stemningin góð allt sýningartímabilið. Ég er búinn að njóta hverrar mínútu og það er eiginlega hálf óraunverulegt að við séum að kveðja þetta,“ segir Árni sem segir aðsóknina hafa farið fram úr björtustu vonum.

„Búálfurinn hefur þó ekki sungið sitt síðasta, upptaka af sýningunni verður bráðum gerð aðgengileg og svo er aldrei að vita nema Benedikt dúkki upp á ýmsum skemmtunum í náinni framtíð.“

Þrjár sýningar eru um helgina, tvær á laugardeginum og ein á sunnudeginum. Miðasala fer fram á mak.is.

UMMÆLI

Sambíó