Bílakjörstaður fyrir fólk í einangrun eða sóttkví

Bílakjörstaður fyrir fólk í einangrun eða sóttkví

Kjósendur sem eru í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19 geta kosið til Alþingis í sérstakri utan kjörfundar atkvæðagreiðslu.

Sjá einnig: Alþingiskosningar 25. september á Akureyri.

Boðið verður upp á bílakosningu í húsnæði Frumherja á Akureyri fimmtudag og föstudag kl. 16:30 – 18:00 og á kjördag kl. 13:00 – 14:00. Einnig í húsnæði Frumherja á Húsavík miðvikudag kl. 16:30 – 17:30 og á kjördag kl. 11:00 – 12:00. Kjósandi þarf að koma einn í bifreið og má hvorki opna hurðir né glugga. Ekki þarf að panta tíma eða framvísa vottorði.

Þau sem ekki geta kosið í bílakosningu geta sótt um að greiða atkvæði á dvalarstað. Senda skal sérstaka umsókn sem finna á www.kosning.is. Umsókn skal hafa borist fyrir kl. 10:00 á kjördag, sé dvalarstaður kjósanda innan kjördæmis, en fyrir kl. 10:00 fimmtudaginn 23. september, sé dvalarstaður kjósanda utan kjördæmisins.

Athygli er vakin á því að staðfesting sóttvarnayfirvalda á að viðkomandi sé í einangrun eða sóttkví fram yfir kjördag þarf að fylgja beiðninni.


UMMÆLI