Prenthaus

Bíllausi dagurinn er á morgunMynd: María Helena Tryggvadóttir

Bíllausi dagurinn er á morgun

Evrópska samgönguvikan stendur nú yfir og á morgun, fimmtudaginn 22. september, er bíllausi dagurinn. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur, skilja einkabílinn eftir heima og nota í staðinn umhverfisvæna og heilsusamlega samgöngumáta. Á Akureyri eru kjöraðstæður til að skilja einkabílinn eftir heima enda eru vegalengdir stuttar og veður oftast gott.

Í tilefni dagsins verður ókeypis í Sundlaug Akureyrar fyrir þá sem mæta gangandi, hjólandi, hoppandi eða með strætó. Auk þess verður ekkert startgjald á rafskútum frá HOPP.

Ýmsir skólar, leikskólar, stofnanir og fyrirtæki hafa nú þegar staðfest þátttöku í deginum. Má þar nefna Menntaskólann á Akureyri, Brekkuskóla, Giljaskóla, Glerárskóla, Kiðagil, Sjúkrahúsið á Akureyri, Íþróttahúsið og Norðurorku. Þar mun starfsfólk og nemendur nota aðra samgöngukosti en einkabílinn til og frá vinnu og skóla. Háskólinn á Akureyri tekur þátt í umhverfisátaki allan september og hélt sinn bíllausa dag á mánudaginn.

Bíllausi dagurinn er lokahnykkurinn á Evrópskri samgönguviku sem fer fram árlega 16.-22.september. Yfirskrift samgönguvikunnar ár er Veljum fjölbreytta ferðamáta.

Þess má geta að í tilefni samgönguviku hefur verslunarmiðstöðin Glerártorg staðsett nýja hjólastanda við alla innganga hjá sér auk þess sem að HOPP er komið með aðstöðu.

Akureyringar eru hvattir til að deila á samfélagsmiðlum mynd af sér á vistvænni og heilsusamlegri ferð á bíllausa daginn með myllumerkjunum #mobilityweek #hallóakureyri og #hjolak.

UMMÆLI