Birkir Heimisson snýr aftur heim í Þorpið

Birkir Heimisson snýr aftur heim í Þorpið

Knattspyrnumaðurinn Birkir Heimisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þór eftir að Knattspyrnudeild Þórs og Valur komust að samkomulagi um félagsskipti. Þetta kemur fram á vef Þórs.

Birkir snýr aftur heim til Þórs þar sem hann spilaði síðast árið 2016 en sumarið 2016 seldu Þórsarar Birki til hollenska úrvalsdeildarliðsins Heerenveen. Birkir, sem er 24 ára gamall, hefur svo leikið með Val í Reykjavík í efstu deild hér á landi frá árinu 2020.

Birkir hefur leikið 125 leiki hér á landi og skorað þrettán mörk. Auk þess hefur hann leikið 28 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað fimm mörk.

Sveinn Elías, formaður knattspyrnudeildar Þórsara skrifar eftirfarandi á heimasíðu Þórs í gær

Í kvöld náðum við samkomulagi við Val og Birki um að leikmaðurinn snúi aftur heim til Þórsara. Við í stjórn knattspyrnudeildar Þórs erum virkilega stoltir af því að fá Birki aftur heim, hann hefur síðustu fjögur tímabil spilað lykihlutverk með Val í Bestu deild karla og varð m.a. Íslandsmeistari með þeim árið 2020.

Nú er hins vegar komið að því að hann taki að sér nýtt leiðtogahlutverk hjá sínu uppeldisfélagi. Birki þarf ekki að kynna fyrir neinum Þórsara. Við fengum síðast að njóta krafta hans á vellinum árið 2016, sjálfur var ég í hlutverki fyrirliða inni á vellinum þá og veit því fullvel hvers hann er megnugur og því er ekki að leyna að koma hans ýtir vel undir spenning fyrir komandi sumri.

Ég vil þakka Val fyrir fagleg og góð vinnubrögð í samtali okkar vegna Birkis og býð hann og fjölskylduna innilega velkomin heim í Þorpið!

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó