Birna tilnefnd til GrímunnarMynd: Leikfélag Akureyrar

Birna tilnefnd til Grímunnar

Birna Pétursdóttir hlaut í gær tilnefningu til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, fyrir hlutverk sitt sem Daði dreki í söngleiknum Benedikt búálfur. Birna hlýtur tilnefningu í flokknum Leikkona ársins 2021 í aukahlutverki.

Sjá einnig: Benedikt búálfur tilnefndur sem leiksýning ársins

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leikfélagi Akureyrar. Þar kemur fram að Gríman verði með óvenjulegu sniði í ár vegna heimsfaraldursins. Til að mynda færast sviðslistaverkið Tæring og grínleikurinn Fullorðin báðar yfir á næsta verðlaunaár.

Sýningar á Benedikt búálfi í Hofi eru komnar í pásu í bili en sýningin verður tekin upp að nýju í haust. Gríman verður afhent á morgun, fimmtudaginn 10. júní, í Tjarnarbíói og verður einnig í beinni útsendingu á Rúv.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó