Björg Eiríksdóttir opnar sýninguna Fjölröddun – Blóm í Hofi

Björg Eiríksdóttir opnar sýninguna Fjölröddun – Blóm í Hofi

Myndlistarkonan Björg Eiríksdóttir opnar sýningu sína Fjölröddun – Blóm í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 5. mars kl. 15. Sýningin er framhald sýningarinnar Fjölröddun (Polyphony) sem var í Listasafninu á Akureyri 2019-20.

Titillinn Fjölröddun vísar til þess þegar lög skynjana vefjast hver um aðra og mynda mynstur í líkamanum. Grunnstef færist milli radda uns allar raddir fléttast saman en eru þó sjálfstæðar.

Björg var í MA námi við myndlistardeild háskólans í Portó síðasta vetur, lauk MA í listkennslu frá HA vorið 2017, útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri 2003 og lauk Bed frá KHÍ 1991. Hún starfar við myndlist samhliða kennslu myndlistargreina í VMA og listkennslu í LHÍ. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og er þetta tólfta einkasýning hennar.

Sýningin í Hofi stendur frá 5. mars til 17. apríl.

UMMÆLI

Sambíó