Björgunaraðgerðir í Brimnesdal gengu vel þrátt fyrir krefjandi aðstæður

Björgunaraðgerðir í Brimnesdal gengu vel þrátt fyrir krefjandi aðstæður

Eins og greint var frá fyrr í dag féll snjóflóð í Brimnesdal í Ólafsfirði í morgun. Viðbragðsaðilar í Eyjafirði fengu tilkynningu klukkan 12:27 að snjóflóð hefði fallið á sjö manna hóp skíðamanna á svæðinu, nánar tiltekið undir Kistufjalli. Í tilkynningu lögreglunnar fyrr í dag kom fram að einn úr hópnum væri skaðaður.

Sjá einnig: Snjóflóð féll á skíðahóp í Brimnesdal

Sveitir Landsbjargar frá Siglufirði til Akureyrar voru ræstar út, lögregla og sjúkraflutningamenn á Tröllaskaga og þá var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Aðgerðastjórn var virkjuð á Akureyri.

Um tveimur klukkustundum eftir að útkall barst komust sjúkraflutningamenn til hópsins. Kom þá í ljós að annar skíðamaður var einnig lítilsháttar slasaður. Hlúð var að hinum slösuðu og búið um þau til flutnings. Voru þau flutt niður Brimnesdalinn og þar í sjúkrabíl sem flutti þau til Akureyrar. Þyrla LHG gat ekki aðhafst á slysavettvangi vegna veðurskilyrða en hún var kominn til Ólafsfjarðar áður en flutningur á hinum slösuðu til byggða hófst.

„Verkefnið gekk vel fyrir sig en aðstæður voru mjög krefjandi sökum úrkomu, snjóblindu og mikilar snjóflóðahættu á svæðinu. Á leið sinni á vettvang sáu viðbragðsaðilar hvar snjóflóð höfðu fallið á nokkrum stöðum í dalnum. Viljum við árétta hér að mikil snjóflóðahætta er á Tröllaskaga og nálægum útivistarsvæðum til fjalla. Nánar um það má finna á vef Veðurstofunnar. Þökkum við öllum sem komu að þessu verkefni og voru störf þeirra til fyrirmyndar sem endra nær,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Sambíó

UMMÆLI