Björgvin EA heldur til veiða eftir endurbæturBjörgvin EA 311 nýmálaður við Togarabryggjuna á Akureyri í morgun. Mynd: Samherji

Björgvin EA heldur til veiða eftir endurbætur

Togarinn Björgvin EA 311 heldur til veiða í dag en skipið hefur verið í slipp síðustu vikur þar sem sinnt hefur verið ýmis konar viðhaldi. Stærstu verkþættir voru upptekt á aðalvél og viðhald á spilkerfi, þvottur og málun skipsins, ásamt ýmsum smáverkum. Verkið var unnið hjá Slippnum Akureyri. Þetta kemur fram á vef Samherja.

„Björgvin EA var teiknaður af Bárði Hafsteinssyni skipaverkfræðingi og er einn af mörgum togurum sem smíðaðir voru í Flekkefjord í Suður-Noregi. Skipið var smíðað árið 1988, kom til heimahafnar á Dalvík í fyrsta skipti hinn 26. júlí það ár og er því orðið 33 ára. Skipið hefur ávallt verið í góðu viðhaldi og þá hefur áhöfnin gætt þess að fara vel með skipið í gegnum árin. Skrokklag skipsins hefur alltaf þótt býsna athyglisvert. Segja má að með hönnun skipsins hafi í fyrsta sinn verið þróað stefni sem Bárður Hafsteinsson útfærði síðan enn frekar við hönnun nokkurra togara sem smíðaðir hafa verið í Tyrklandi á síðustu árum og hafa reynst afar vel,“ segir í tilkynningu Samherja.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó