Sigurður Hjörtur Þrastarson, CrossFit þjálfari hjá CrossFit Akureyri mun um næstu helgi taka þátt á Evrópuleikunum í CrossFit sem haldnir eru í Madrid um næstu helgi.
Þar mun Sigurður etja kappi við 40 bestu CrossFitt kappa Evrópu en hann tryggði sér þátttökuréttinn með því að hafna í 9. sæti í Evrópu í CrossFit open sem er opin undankeppni fyrir leikana.
Björk Óðinsdóttir tekur einnig þátt á sama móti en hún er Akureyringur sem búsett er í Danmörku. Til mikils er að vinna á mótinu því fimm efstu keppendur vinna sér inn þátttökurétt á Heimsleikunum í CrossFit.
Kaffið mun fylgjast vel með gangi mála á mótinu næstu helgi.
![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/03/13139332_10153633478578963_7225319091512223275_n-650x650.jpg)
Sigurður Hjörtur Þrastarson
UMMÆLI